3,99 €
inkl. MwSt.
Sofort per Download lieferbar
  • Format: ePub

Kormáks saga gerist á tíundu öld og aðalpersónur verksins eru Kormákur Ögmundarson og hans stóra ást, Steingerður. Kormákur var eitt nafnkunnasta skáld síns tíma og segir sagan frá honum, eirðarlausum förumanni á ferð um Ísland, Noreg og Bretlandseyjar. Verkið inniheldur fjölmörg ljóð sem eignuð eru Kormáki og eru þau mörg hver ástarjátningar til Steingerðar en í sögunni má finna ríflega áttatíu dróttkvæði. Kvæðin fjalla um ástina, lof til Steingerðar en einnig má í þeim finna niðrandi orðsendingar til eiginmanns hennar. Sagan er talin vera með fyrstu Íslendingasögum sem skrifaðar voru en hún hefur varðveist vel.-…mehr

Produktbeschreibung
Kormáks saga gerist á tíundu öld og aðalpersónur verksins eru Kormákur Ögmundarson og hans stóra ást, Steingerður. Kormákur var eitt nafnkunnasta skáld síns tíma og segir sagan frá honum, eirðarlausum förumanni á ferð um Ísland, Noreg og Bretlandseyjar. Verkið inniheldur fjölmörg ljóð sem eignuð eru Kormáki og eru þau mörg hver ástarjátningar til Steingerðar en í sögunni má finna ríflega áttatíu dróttkvæði. Kvæðin fjalla um ástina, lof til Steingerðar en einnig má í þeim finna niðrandi orðsendingar til eiginmanns hennar. Sagan er talin vera með fyrstu Íslendingasögum sem skrifaðar voru en hún hefur varðveist vel.-
Autorenporträt
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.