Í desember 1998 bárust lögreglunni kærur á hendur 49 ára karlmanni fyrir kynferðisbrot gagnvart tveimur unglingsstúlkum, 14 og 15 ára gömlum. Á meðan yfirheyrslum stóð sýndi sakborningur endurtekið furðulega hegðun og var hann einnig þekktur meðal lögreglumanna fyrir að vera sífellt í útistöðum við fólk og yfirvöld. Það sem réði úrslitum hvað sönnunarfærsluna varðar var húsleitin sem gerð var á heimili sakbornings, en þar kom margt í ljós sem varpaði nýju ljósi á málið og manninn.-