Fyrsta metsölubók Ken Follett er grípandi frásögn þar sem örlög seinni heimsstyrjaldar hvíla í höndum slyngs njósnara og hugrakkrar konu. Árið er 1944 og Henry Faber, þýskur njósnari í Bretlandi, kemst að áformum Breta um að ráðast inn í Normandí. Með því upphefst æsispennandi eltingarleikur, þar sem Faber ferðast í gegn um Bretland til að koma upplýsingunum áleiðis til þýskra yfirmanna sinna, með bresku leyniþjónustuna á hælunum. Hann kemst þó ekki langt, því hann verður skipreka á skoskri eyju, þar sem hann hittir konu sem breytir öllu sem hann hefur áður haft trú á og með því gangi sögunnar. Bókin var gerð að kvikmynd árið 1981, með Donald Sutherland í aðalhlutverki. Hún fékk bandarísku Edgar verðlaunin árið 1979 og er enn í dag ein vinsælasta bók Folletts.
Dieser Download kann aus rechtlichen Gründen nur mit Rechnungsadresse in A, B, BG, CY, CZ, D, DK, EW, E, FIN, F, GR, HR, H, IRL, I, LT, L, LR, M, NL, PL, P, R, S, SLO, SK ausgeliefert werden.