Hannes Jónsson læknir rifjar upp fortíð sína og játar gamlar syndir fyrir æskuvini sínum. Æskuvinurinn virðist þó stundum ímyndaður eða jafnvel vera hans eigin samviska.Sögurnar sem eru hluti af smásagnasafni Davíðs Þorvaldssonar, eru: Björn formaður, Árni munkur, Skógarinn litli frá Villefranche-sur-mer, Veðmálið, Skólabræðurnir og Úr dagbók vinar, en bókina tileinkað hann móður sinni eftir andlát hennar. Bókin fékk mjög góða dóma á Íslandi og var því haldið fram að höfundur hefði einstaka innsýn í sálarlíf manna. Sögurnar bera allar stílbragð Davíðs, sem skrifaði listilega vel og í myndlíkingum sem krefjast þess að lesandi lesi milli línanna ásamt því að boðskapur sagnanna endurspegla oft tilfinningaríkar reynslur úr lífi höfundar.