Ludwig van Beethoven er flestum tónlistarunnendum kunnugur. Hann var tónskáld og píanóleikari, fæddur og uppalinn í Bonn í Þýskalandi. Fyrsta sinfónía Beethoven var frumflutt árið 1800, stuttu síðar fór heyrn Beethoven að hraka. Serían fjallar um helstu tónsnillinga allt frá árunum 1525-1907. Hún er byggð á skrifum Theodórs Árnasonar sem var íslenskur tónlistarmaður. Fjallað er um líf tónskálda og verk þeirra. Bókin kom fyrst út árið 1966.