Það þekkja allir Ralf Vandura, nafnið sem er á allra kvenna vörum í München. Þessi myndarlegi maður er ekki eingöngu hæfileikaríkur læknir, heldur hefur hann getið sér gott orðspor sem sálusorgari eiginkvenna sem telja sig misskildar og vanræktar. Þegar ung kona að nafni Katja Hellersen er borin inn á stofu hans í miklu losti, tekur líf hans stakkaskiptum. Skyndilega á hann í leynilegu ástarsambandi og er grunaður um alvarlegt morð. Vandura sér ekki aðra lausn en að flýja til Mið-Austurlanda og hefja þar nýtt líf. Ekki líður þó á löngu þar til fortíðin bankar upp á og raskar nýfundnu jafnvægi læknisins.
Dieser Download kann aus rechtlichen Gründen nur mit Rechnungsadresse in A, D ausgeliefert werden.