Hér er komið safn af sögum um Gurru grís þar sem hún lendir í ýmsum ævintýrum. Gurra og vinir hennar leika sér í sandkassa, fara í útileiki, halda útihátíð, fara með gæludýrin sín í skólann og margt fleira. Við kynnumst meðal annars gullfisknum Gullu og Kötlu kengúru, en margir aðrir koma við sögu. Öll fjölskyldan getur haft gaman af þessum stuttu, líflegu sögum.Við lendum í spennandi ævintýrum með Gurru grís, Georg, mömmu, pabba, Siggu sebrahesti, Kötu kind, Kristjönu kanínu og mörgum fleiri! Förum í Gurrusirkus, útileiki, körfubolta og bátsferðir og búum okkur undir að hoppa í drullupollum með uppáhaldsgrísastelpunni okkar! Oink! Oink!
Dieser Download kann aus rechtlichen Gründen nur mit Rechnungsadresse in A, D ausgeliefert werden.